Sigurður skorar á alla sem eru 50 ára að gefa þúsund krónur fyrir hvert ár

„Fram undan er erfiður tími hjá mörgum vegna tekju­missis og at­vinnu­leysis. Ég skora á sem flesta að leggja hjálpar­starfinu lið,“ segir Sigurður Grétar Sigurðs­son, sóknar­prestur í Út­skála- og Hvals­nes­sóknum, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Sigurður, sem er fæddur árið 1970, er fimm­tugur í ár og bendir hann á það í grein sinni að Hjálpar­starf kirkjunnar fagni einnig 50 ára af­mæli.

„Ég leyfi mér að skora á alla fimm­tuga, sem tök hafa á, að færa Hjálpar­starfi kirkjunnar kr. 50.000 sem af­mælis­gjöf, 1.000 krónur fyrir hvert ævi­ár,“ segir Sigurður en Hjálpar­starf kirkjunnar stendur fyrir öflugu hjálpar- og sjálfs­eflingar­starfi hér­lendis sem er­lendis.

„Má þar nefna þátt­töku í neyðar­að­stoð, þróunar­að­stoð, vald­eflingu fólks, stuðning við ein­stak­linga og fjöl­skyldur og svo ótal margt fleira. Hjálpar­starf kirkjunnar er í sam­starfi við söfnuði þjóð­kirkjunnar um allt land með stuðningi við fólk í neyð auk þess sem fjöl­margir söfnuðir leggja hjálpar­starfinu lið t.d. með fermingar­barna­söfnuninni sem allir þekkja.

Sigurður segir að nánari upp­lýsingar um starfið megi nálgast á vef­síðunni help.is, en þar má einnig finna fjöldann allan af gjafa­bréfum sem hægt er að senda til vina og vanda­manna af ýmsu til­efni og í mörgum verð­flokkum. Bendir Sigurður á að fáir hafi haldið upp á stór­af­mæli í ár vegna á­standsins og spyr hann hvort fólk vilji ef til vill gleðja ein­hvern ættingja eða vin vegna stór­af­mælis.

Styrktar­reikningur fyrir hjálpar­starf innan­lands er: Banki 0334-26-27, kenni­tala: 450670-0499 eða söfnunar­sími innan­lands­að­stoðar 9072002 (kr. 2.500).