Sigurður segir RÚV hafa valdið skaða með um­fjöllun sinni: „Ljós­mæðrum og fæðingar­læknum var kastað undir rútuna“

Sigurður Guð­jóns­son, þvag­færa­skurð­læknir, segir RÚV hafa grafið undan trausti hjá fæðingar­þjónustu á landinu eftir um­fjöllun Kveiks um erfiða fæðingu Berg­þóru Birnu­dóttur.

„Fyrir nokkrum misserum fylktu lands­menn sér á bak við ljós­mæður undir myllu­merkinu #Ég styð ljós­mæður. Fólk taldi með réttu að þessi mikil­væga stétt sem vinnur myrkranna á milli alla daga ársins ætti skilið betri kjör og starfs­að­stæður. Konur kepptust við að deila já­kvæðri upp­lifun sinni og þakk­læti til ljós­mæðra á sam­fé­lags­miðlum. Þetta var stéttinni mikill stuðningur og hvatning að helga sig á­fram starfinu,“ skrifar Sigurður í grein á Vísi.

„Í vikunni sem leið beindu rann­sóknar­blaða­menn RÚV hins vegar spjótum sínum að þessari göfugu starf­stétt og grófu um leið eins og hendi væri veifað undan trausti á fæðingar­þjónustu í landinu. Ljós­mæðrum og fæðingar­læknum var kastað undir rútuna og störf þeirra gerð tor­tryggi­leg á einkar ó­smekk­legan hátt. Gefið var í skyn að ekki væri hlustað á fæðandi konur, þær illa upp­lýstar og jafn­vel beittar ó­þarfa harð­ræði,“ bætir hann við.

Hann bendir að um­fjöllun Kveiks væri byggð á frá­sögn Berg­þóru Birnu­dóttur af hræði­legum af­leiðingum erfiðrar fæðingar.

„Berg­þóra á­telur sam­skipti sín við ljós­mæður í fæðingu og að mis­tök hafi verið gerð í fæðingu barns síns og er ó­sátt við máls­með­ferð Land­læknis­em­bættisins og hyggst fara á­fram með málið fyrir dóm­stóla. Í um­fjöllun Kveiks á þriðju­daginn og Kast­ljóss degi síðar dylst engum að blaða­menn hafa kveðið upp sinn dóm í málinu og öll um­fjöllun er ein­hliða og ó­fag­leg af hendi frétta­manns sem nánast krefst þess að yfir­læknir kvenna­deildar játi meint mis­tök sam­starfs­manna sinna í beinni út­sendingu.“

„Hvergi í um­fjöllun rann­sóknar­blaða­mannanna eru birt gögn um árangur þeirra u.þ.b. 4000 fæðinga sem eiga sér stað á Ís­landi ár hvert eða gæða­saman­burður gerður við önnur lönd í þeim efnum.“

Hann segir að RÚV hafi svo fengið stuðning úr ó­væntri átt þar sem Lilja Al­freðs­dóttir, menningar­mála­ráð­herra rifjaði upp erfiða fæðingar­stögu sína fyrir meira en 10 árum síaðn í Kast­ljósi.

„Lilja taldi að ekki hefði verið á hana hlustað í fæðingu sem hefði getað skaðað hana og barn hennar og þessi reynsla hafi legið þungt á henni allar götur síðan. Í kjöl­farið hafa fjöl­margar konur stigið fram og lýst erfiðri reynslu í sam­skiptum við fæðingar­þjónustuna, hlutir hafi farið úr­skeiðis, ekki hafi verið á þær hlustað og skort á upp­lýsinga­gjöf. Þetta eru að sönnu á­hrifa­miklar, sorg­legar sögur sem snerta við al­menningi og oft má hugsa sér að ef eitt­hvað hefði verið gert öðru vísi þá hefði út­koman getað orðið önnur og betri.“

„Í kjöl­farið hljómar í berg­máls­helli fjöl- og sam­fé­lags­miðla sem og frá ráð­herra heil­brigðis­mála: „Við þurfum að hlusta betur á fæðandi konur og bæta sam­skiptin“. Þetta eru mark­mið sem allir geta sam­mælst um en eftir stendur að á sama tíma er á ein­hvern hátt verið hirta ljós­mæður og fæðingar­lækna á opin­berum vett­vangi með um­fjölluninni. Ráð­herra í ríkis­stjórn, sem sjálf telur sig hafa verið ó­rétti beitta, mundar vöndinn. Lítið er gert úr margra ár námi og reynslu fag­stétta.“

„Túlka má óminn í berg­máls­hellinum þannig að fag­fólki sé hollast að breyta út frá gagn­reyndum verk­ferlum sínum ef sjúk­lingur upp­lifir að eitt­hvað sé ekki eins og það á að vera: „Vegna þess að kona þekkir líkama sinn betur en nokkur annar,“ skrifar Sigurður.

Hann segir starf ljós­mæðra snúast að miklu leyti um að hlusta, þær sitja tímunum saman hjá fæðandi konum, veita þeim stuðning, hlýju og nær­gætni. Hvergi í heil­brigðis­kerfinu er eins mikil nánd og á milli ljós­móður og fæðandi konu.

„Fæðing er sjaldnast auð­velt verk­efni fyrir konur að takast á við þrátt fyrir góðan undir­búning og fræðslu. Lang­oftast fer allt vel og hamingju­samir for­eldrar út­skrifast með heil­brigt barn, og það þrátt fyrir að margar konur upp­lifi á ein­hverjum tíma í ferlinu að þetta gangi ekki og þær séu við að gefast upp og oftar en ekki eru það styðjandi orð ljós­móður sem kemur konum í gegnum síðustu hríðirnar í erfiðum fæðingum.“

„Fjöl­miðlar hafa dag­skrár­vald og í þessu til­viki tel ég að RÚV hafi valdið skaða með um­fjöllun sinni. Traust er mikil­vægt í heil­brigðis­þjónustu. RÚV hefur rýrt traust verðandi for­eldra á fæðingar­þjónustunni með ó­á­byrgri og ein­hliða um­fjöllun. Ljós­mæður og fæðingar­læknar eru í sárum eftir um­fjöllunina og eiga erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér eins og ó­vægin um­ræðu­hefð sam­fé­lags­miðlana er orðin.“

„Ef RÚV vill raun­veru­lega láta gott að sér leiða og bæta þjónustu við fæðandi konur ætti stofnunin heldur að beina Kast­ljósinu að lang­varandi van­fjár­mögnun og undir­mönnun heil­brigðis­stétta vegna lé­legra kjara og starfs­um­hverfis. Í þeirri um­ræðu er ó­skandi að menningar­mála­ráð­herra láti til sín taka,“ skrifar Sigurður að lokum.