Sigurður sár og svekktur: „Ég er þingmaðurinn sem Ríkisútvarpið gleymdi“

Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, segir að hann sé þingmaðurinn sem Ríkisútvarpið gleymdi. Sigurður skrifar pistil um málið í Morgunblaðið í dag en tilefnið er svar Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, við fyrirspurn sem Inga Sæland lagði fram ekki alls fyrir löngu.

Í fyrirspurn sinni spurði hún út í umfjöllun RÚV um ákveðna stjórnmálamenn, en í ljós kom að Sigurður Páll er sá þingmaður sem sjaldnast hefur ratað í fréttir RÚV frá ársbyrjun 2018 til janúarloka 2021. Yfirskrift pistils Sigurðar er einmitt þessi: Ég er þingmaðurinn sem Ríkisútvarpið gleymdi.

Í grein sinni reynir Sigurður Páll að bæta fyrir þetta og nefnir nokkur af sínum baráttumálum og áhugamálum.

„Ég er raf­virki frá Iðnskól­an­um í Reykja­vík og hef skip­stjórn­ar- og vélavarðarréttindi á 30 tonna skip. Ég hef unnið sem bif­reiðar­stjóri, raf­virki og sjó­maður. Ég hef verið með eig­in trillu­út­gerð og finnst stund­um gam­an að titla mig sem út­gerðarmann. Það er kannski svo­lítið mikið í lagt en mín­ar bestu stund­ir eru þegar ég sigli minn sjó, gjarn­an með syni mín­um og við kom­um gjarn­an með nokkra fiska að landi. Ég geri út frá Stykk­is­hólmi sem mér finnst fal­leg­asti bær lands­ins,“ segir hann.

Hann segir að áhugamálin séu mörg; körfubolti, kórastarf og Lions-klúbburinn sem hann er í. Hann nefnir að hann eigi sæti í atvinnuveganefnd og eyði drjúgum tíma á fundum þar.

„Meðal ann­ars sam­tals um fimm tím­um í vik­unni þegar kom í ljós að Rík­is­út­varpið vissi ekki að ég væri til. Og hvað gerði ég annað í þess­ari viku? Jú, ég átti um það bil 40 sím­töl og sam­töl við fólk í mínu kjör­dæmi sem hef­ur áhyggj­ur og áhuga á alls kon­ar mál­efn­um og sat tvo þing­flokks­fundi með fé­lög­um mín­um í Miðflokkn­um.“

Sigurður Páll segir að hann hafi gaman af störfum sínum á Alþingi þótt hann sé algerlega ótruflaður af Ríkisútvarpinu.

„Það er kannski ekki svo slæmt fyr­ir mig per­sónu­lega en mér finnst stund­um eins og þetta lýsi líka af­stöðu Rík­is­út­varps­ins til kjós­enda minna. Það finnst mér miður af því það á nú að heita út­varp allra lands­manna.“