Sigurður og Björn ósáttir við framsetningu RÚV: „Hvað gengur fréttastofunni til með þessu?“

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður gagnrýnir Sigurð Örn Hilmarsson, formann Lögmannafélags Íslands, harðlega á Facebook-síðu sinni. Hann lætur RÚV einnig finna fyrir því en þeir nafnar Sigurður G og Sigurður Örn hafa eldað grátt silfur saman að undanförnu.

Í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun segir Sigurður G. Guðjónsson meðal annars:

„Það er eins og fjölmiðlar haldi að formaður Lögmannafélags Íslands, sem er félag sem lögmönnum er skylt að eiga aðild að, sé einhvers konar æðsti klerkur þegar kemur að túlkun og beitingu laga. Svo er ekki. Hlutverk hans er að leiða skylduaðildarfélag og gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum fyrst og síðast.“

Tilefni skrifanna er frétt RÚV um endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi sem nokkuð hefur verið fjallað um að undanförnu. Hafði RÚV það eftir Sigurði Erni að Alþingi bæri að ógilda kosningar í Norðvesturkjördæmi vegna klúðursins sem varð þar um liðna helgi.

„Á daginn kom svo að formaðurinn er að vinna fyrir þingmenn sem eru þolendur mistakanna hjá kjörstjórn. Formaður lögmannafélagsins virðist því, eins og áður á stuttum formannsferli, hafa gleymt að skipta um hatt eða RÚV verið að skreyta fréttina með ósannindum. Hvoru tveggja er jafn slæmt,“ segir Sigurður G. í færslu sinni.

Hann segir að Lögmannafélag Íslands hafi ekki efnt til félagsfundar um kosningamistökin í Norðvesturkjördæmi. Þá hafi engin tillaga eða samþykkt verið gerð innan vébanda lögmannafélagsins um að þau séu þess eðlis að ógilda beri kosningu og efna til uppkosninga.

„Er þó félagsmaður meðal þolenda, þó ekki sem lögmaður heldur áhugamaður um stjórnmál.

Meðan lögmenn hafa ekki falið formanni Lögmannafélags Íslands að tala fyrir ógildingu kosninga í Norðvesturkjördæmi verður hann að reka áróður fyrir réttmæti málefna skjólstæðinga sinna í kosningamáli þessu fyrir eigin reikning en ekki annarra.

Ríkisútvarpið verður svo að venja sig við sannleika sérhvers máls og þá staðreynd að sannleikurinn er stundum annar en sá sem á borð er borinn, jafnvel af lögmönnum með rangan hatt eða engan, eins og koma mun síðar í ljós í öðru og óskyldu máli.“

Sigurður G. gagnrýndi Sigurð Örn á dögunum þegar sá síðarnefndi gagnrýndi birtingu hans á gögnum í máli Þórhildar Guyðu Arnardóttur gegn knattspyrnumanninum Kolbeini Sigþórssyni.

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi þessa framsetningu RÚV einnig á Facebook-síðu sinni í gær. Þar sagði hann:

„Þegar þessi frétt var flutt og fyrst sett inn á ruv.ís var punkturinn sá að formaður Lögmannafélagsins hefði þá skoðun að um ólöglega kosningu í NV-kjördæmi hefði verið að ræða. Þannig var fréttin einnig kynnt í hádegisfréttum 2. október og Sigríður Hagalín borin fyrir henni. Þegar fréttin var síðan lesin kom í ljós að formaðurinn er lögmaður tveggja þingmannsefna sem una ekki úrslitunum. Það var því brella að kynna málið á þann veg sem gert var og í sama anda og þegar Sigríður Hagalín bauð einu þingmannsefni sem telur sig eiga um sárt að binda að flytja mál sitt í Kastljósi. Hvað gengur fréttastofunni til með þessu? Hún skipar sér yst á jaðar í málinu hvað eftir annað - hvers vegna? Hitt er síðan annað mál að þeir sem sækjast eftir kjöri til alþingis og ná því ekki kjósi að telja fylgisleysi sitt lögbrot. Ættu þeir ekki frekar að kvarta undan kjósendum en teljendum atkvæða?“