Sigurður Már Jónsson, starfsmaður Miðflokksins, segir að þættir Sævars Helga Bragasonar, Hvað höfum við gert og Hvað getum við gert, hafi hrætt líftóruna úr ungu fólki.
Hann vitnar í frétt Fréttablaðsins um könnun sem leiddi í ljós að sextíu prósent ungmenna telja mannkynið dauðadæmt vegna hnattrænna loftslagsbreytinga. Þar var rætt við fræðimann sem sagði þetta faraldur í geðheilsu ungmenna.
„Það þarf ekki að hafa mörg orð um hve alvarleg tíðindi þetta eru og minnist ég samtals við lækni um daginn sem lýsti því yfir að það það væri kvíði sem væri að hrjá landsmenn öðru fremur og hafði hann þungar áhyggjur af þróun mála,“ sagði Sigurður Már í bloggi sínu.
Hann segir ástæðuna fyrir þessu einfalda.
„Jú, undanfarin misseri hefur dunið á börnum og unglingum gengdarlaus áróður um væntanlegar hamfarir í loftslagsmálum. Þeir sem stunda þetta óábyrga tal hafa kosið að færa vígvöllinn inn í barnaherbergin og skirrast þannig ekki við að beita börnunum fyrir sig,“ segir hann.
Beinir hann spjótum sínum að Sævari, best þekktum sem Stjörnu-Sævari.
„Þetta birtist í allskonar þáttum en við getum hér nefnt Krakkafréttir og þættina, Hvað höfum við gert og Hvað getum við gert. Síðarnefndu þættirnir tveir byggja mjög mikið á einhliða viðtölum við börn og það fer enginn í grafgötur með að stjórn og umsjón dagskrárefnisins er í höndum fullorðinna sem eru með þessu að framfylgja áhugamálum sínum sem þeir hafa síðan tekjur af.“
Sigurður Már telur að þetta sé komið til að vera:
„Þetta er auðvitað döpur niðurstaða en umfjöllun fjölmiðla, loftslagssinna og álitsgjafa í kjölfar þessarar frétta vekur ekki vonir um að þetta muni breytast. Því miður.“