Sigurður lýsir helför að einkabílnum og nefnir göturnar sem búið er að skemma

Sigurður Oddsson, verkfræðingur og eldri borgari, segir að búið sé að skemma fjölmargar götur í Reykjavík með því að þrengja að bílum. Sigurður skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann lýsir reynslu sinni af því að búa í Zurich í Sviss og svo í Reykjavík.

Hann segir að í Tækniháskóla ETH í Zurich hafi verið kennt að líf borga byggðist á framleiðslu og greiðum samgöngum fyrir alla: Gangandi, hjólandi, bíla og almenningssamgöngur.

Þegar hann fór að vinna og eignaðist bíl segist hann hafa séð þvílík snilld stofnbrautirnar eru með tengingu útjaðra við miðborgina og aðra borgarhluta.

„Á daginn er umferð stofnbrauta mest tengd atvinnustarfsemi en á kvöldin mest notuð af einkabílum. Ég kynntist vel samgöngum í Zürich áður en við fluttum heim og hef samanburðinn. Í Sviss er skipulagið unnið af fagmönnum. Hér virðist ekki krafist sérþekkingar á skipulagsmálum til að geta orðið skipulagsstjóri,“ segir Sigurður og bætir við að það fyrsta sem hann tók eftir hér voru hættulegar tengingar við stofnbrautir sem væri bannað í Sviss. Hér virðist aftur á mótin hefð á þrátt fyrir stöðug slys.

„Ég lenti líka oft í röð bíla sem stoppuðu í hvert skipti sem strætó stoppaði á miðri akrein. Frá stúdentagörðum HÍ er bílaröðin oft yfir Melatorg og langleiðina að elliheimilinu Grund. Við Hofsvallagötu var þrengt að bílum þegar ein akrein var tekin undir blómaker og fuglabúr. Grensásvegur var skemmdur til að lækka hraðann í íbúðargötu. Háaleitisbraut er nú skemmd á sama hátt og Grensásvegur. Þar eru steypuklossar settir á miðja götu til hraðahindrunar. Þeir sjást illa í myrkri og skemma bíla,“ segir Sigurður og bætir við að út um allt sé bílastæðum fækkað í þeim tilgangi að hindra íbúana í að nota bíla sína.

„Þeir skulu taka strætó eigi þeir erindi í miðbæinn, þar sem bílaleigum eru leigð stæði, sem langtímum standa auð engum til gagns. Bústaðavegur er nú skemmdur sem stofnbraut með byggingu raðhúss á gatnamótum Bústaðavegar og Grensásvegar. Áfram til austurs koma íbúðablokkir á miðjum Bústaðavegi, eins og kynnt hefur verið. Á hinum endanum við Sprengisand eru framkvæmdir við hringtorg. Þar hefur mislægum gatnamótum oft verið lofað. Allt svikið.“

Sigurður segir svo í grein sinni að nýjustu skipulagstillögur með byggingu blokka og þrengingu stofnbrauta sýni að með borgarlínu skal bílum útrýmt úr borginni.

„Tilgangurinn helgar greinilega meðalið. Helför er réttnefni á gjörningnum. RÚV kynnir stöðugt hina nýju Reykjavík og höfundinn Dag líkt og kynning Guðna var áður en hann bauð sig fram til forseta. Þeir sem hafa skipulagt vöruflæði í verksmiðjum vita að lengd gangs er tíminn sem tekur að fara eftir honum og ekki lengd hans í metrum. Sama gildir um stofnbrautir. Þrenging að þeim dregur úr flutningsgetu. Sama er að segja um hringtorg í stað mislægra gatnamóta t.d. við Sprengisand og víðar. Með byggingu á svokölluðum þéttingarsvæðum lengist leiðin heim til þeirra sem búa austan Elliðaáa. Hin nýja Reykjavík þrýstir Árbæjar- og Breiðholtshverfi upp á Sandskeið. Íbúar þessara hverfa búa við það sem skipulagið kallar bílaborg.“