Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi fjölmiðlamógúll, líkir Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík við enska stórliðið Manchester United.
Hann deilir mynd af fréttaskýringu Fréttablaðsins í dag um vandræði Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Bent er á að linnulítil endurnýjun hafi einkennt oddvitamál Sjálfstæðismanna í borginni síðan Davíð Oddsson var borgarstjóri.
Eins og sparkspekingar vita hefur Manchester United líka verið í vandræðum síðustu ár, eða síðan að Sir Alex Ferguson hætti þjálfun liðsins árið 2013 eftir 26 ár við stjórnvölinn.
„Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík er eins og Manchester United. Leikkerfin hafa ekki gengið upp síðan hjá Oddson og Ferguson stigu til hliðar en hættu ekki að stjórna,“ segir Sigurður á Facebook-síðu sinni og vísar til þess að Davíð og Sir Alex eru enn á hliðarlínunni þó þeir séu formlega hættir afskiptum.