Sigurður Ingi skellti sér í hrað­próf til að fagna með vinum

Sam­göngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhanns­son, fór í co­vid hrað­próf í kvöld til að geta fagnað með vinum sínum.

Hann greindi sjálfur frá þessu á insta­gram en Sigurður hefur veirð stuðnings­maður þess að nýta hrað­prófin í meira mæli.

„Hrað­prófin geta hjálpað við að halda á­fram,“ skrifar Sigurður á Instra­gram er hann birti mynd af því þegar verið er að stinga pinnanum upp í nefið á honum.