Sigurður Ingi segir Bjarna Benediktsson ekki hafa sýnt gott fordæmi

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, segir óheppilegt að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi verið í samkvæmi þar sem sóttvarnareglur voru brotnar í viðtali við RÚV.

"Auðvitað er þetta óheppilegt í alla staði. Það er ekki gott fordæmi fyrir aðra svona eins og frásögnin er af þessu,“ sagði Sigurður. „Ég er vissulega vonsvikinn með þau skilaboð sem þar eru send en afsökunarbeiðnin er meðtekin.“

Þá greindi hann frá því að hann hafi rætt við Bjarna um málið á aðfangadag, þegar fréttir fóru að berast af málinu. Atvikið mun ekki koma til með að hafa áhrif á stjórnarsamstarfið og kallar að hans mati ekki á afsögn Bjarna.

„Aðalatriðið er hins vegar í augsýn og aðalfréttir dagsins og næstu daga er að bólusetningar eru að hefjast. Þess vegna skiptir miklu máli að við séum öll, og ég legg áherslu á öll, þátttakendur í því að virða sóttvarnir þangað til við erum búin að ná bólusetningarferlinu í gang séum að fara út úr þessu Covid ástandi," segir Sigurður Ingi.