Sigurður Ingi rifjar upp brúð­kaups­daginn: „Til hamingju elsku Elsa mín með daginn og okkur og lífið“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­viða­ráð­herra, á brúð­kaups­af­mæli i dag og í til­efni dagsins á­kvað hann deila myndum af brúð­kaups­degi sínum er hann gekkst að eiga Ingi­björgu Elsu In­gjalds­dóttur.

„13 ár! Svona líður tíminn. Til hamingju elsku Elsa mín með daginn og okkur og Lífið,“ skrifar Sigurður Ingi og bætir við einu hjarta.

Frétta­blaðið gerði nær­mynd af Sigurði Inga árið 2019 og þá nefndi Elsa það sér­stak­lega að Sigurður Ingi væri rómantískur.

„Ingi er rómantískur og gerir skemmtun úr hvers­­dags­­legum hlutum. Td. hefur hann til­­­greint há­­tíðar­­klæðnað við kvöld­verðar­boðið og við mætum þar í síð­kjól og jakka­­fötum,“ sagði Elsa og bætti við að hans nánustu kalla hann alltaf Inga.