Sigurður Ingi biðst af­sökunar á um­mælum sínum í garð Vig­dísar: „Í lífinu er maður alltaf að læra á sjálfan sig“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­viða­ráð­herra, biðst af­sökunar á um­mælum sem hann hafði um Vig­­­dísi Häsler f fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka á Bænda­þingi á fimmtu­daginn.

Á þinginu stóð til að taka mynd þar sem þing­­­menn áttu að bera Vig­­­dísi í planka er Sigurður sagður hafa sagst ekki vilja taka þátt í þessu „með þessari svörtu“. Að­­­stoðar­­­maður Sigurðar Inga þver­tók fyrir að hann hafi notað þessi orð en Vig­­­dís segist vita hvað var sagt en Vig­dís og starfs­menn Bænda­sam­takanna hafa sagt að þau vita hvað þau heyrðu en Vig­dís er dökk á hörund og á ættir að rekja til Indónesíu.

„Ég er alinn upp við það og það er mín lífs­skoðun að allir séu jafnir. Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við alla. En mér verður á eins og öðrum. Það þykir mér miður. Í kvöld­verðar­boði Fram­sóknar fyrir full­trúa á Búnaðar­þingi síðast­liðið fimmtu­dags­kvöld, lét ég ó­viður­kvæmi­leg orð falla í garð fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­takanna. Á þeim orðum biðst ég inni­legrar af­sökunar. Í lífinu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­dómur bitni á til­finningum annarra,“ skrifar Sigurður Ingi á Face­book rétt í þessu.

Vig­dís skrifaði færslu fyrr í dag þar sem hún sagði um­mælin hafi verið meiðandi og að hún ætlaði að standa með sjálfum sér.

„Það er særandi þegar reynt er að gera lítið úr upp­­­­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýringar eru notaðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera á­byrgð á þeim orðum sem ráð­herrann við­hafði í minn garð. Duldir for­­­­dómar eru gríðar­­­­legt sam­­­­fé­lags­­­­mein og grassera á öllum stigum sam­­­­fé­lagsins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ sagði Vig­­­dís meðal annars.