Útvarpsmaðurinn og fararstjórinn Sigurður Hlöðversson, betur þekktur sem Siggi Hlö, gefur fylgjendum sínum á Facebook ákveðin ferðaráð nú þegar farið er að hylla undir lok faraldursins.
Siggi er staddur í Grikklandi um þessar mundir og er óhætt að segja að Covid-takmarkanir þar séu ekki eins léttvægar og til dæmis heima á Íslandi.
„Ég er staddur í Aþenu. Hér er eins og Covid sé nýbyrjað. Fólk labbar um með grímur, allir mjög strangir og á öllum stöðum sem þú ferð inná er spurt um bólusetningarvottorð, meira segja ef þú ætlar að sitja utandyra,“ sagði Sigurður á Facebook-síðu sinni í gær.
Sjálfur er hann með tvær Pfizer-sprautur og er auk þess búinn að veikjast af Covid. Segist Sigurður telja að það jafnist á við að hafa fengið þrjár sprautur. Það hefur samt dugað honum skammt þar sem QR-kóðinn á bólusetningarvottorðinu hans virkar ekki – þó það standi að hann gildi til 18. maí næstkomandi.
„Það er bara sagt NEI. Þetta er líklega vegna þess að ég á eftir að fá þriðja skammtinn (bústið) en þetta er ferlegt að vottorðið virki ekki þrátt fyrir að á því standi annað. Hef sent fyrirspurn á Heilsuveru en ekki fengið svör,“ segir Sigurður sem hvetur fólk til að kanna að þessir hlutir séu í lagi áður en haldið er til útlanda.
„Svo mitt ráð til ykkar sem ætlið að ferðast næstu vikur til Evrópu-landa þar sem miklar takmarkanir eru að vera viss um að vottorðið ykkar sé virkt. Að ferðast til Bretlands er ekkert mál, kom frá Englandi hingað til Grikklands og þar er EKKERT vesen. Bara hér er vesen og ég verð að segja að ég er frekar fúll að QR kóðinn virki ekki þó að það eigi að gilda langt fram í maí,“ segir Sigurður sem tekur þó fram að hann sé hress að vanda.