Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, glímir við óvenjuleg eftirköst Covid-19. Sigurður smitast af veirunni á síðasta ári og er því í hópi þeirra þúsunda Íslendinga sem hafa smitast á undanförnum misserum.
Sigurður, sem er stjórnandi Síðdegisþáttarins á K100, sagði frá því í þættinum í gær að vandamálið nú tengist því þegar hann svitnar. Hann missti bragð- og lyktarskyn og virðist lyktarskynið hafa breyst talsvert. Hann tók eftir því á spinningæfingu fyrir skemmstu.
„Þegar ég svitna þá finn ég lykt af hráum lauk. Bara núna í ræktinni – það er bara eins og ég sé nýkomin af bæjarins bestu og sé andandi hráum lauk yfir alla,“ sagði Sigurður í þættinum en fjallað er um þetta á vef Morgunblaðsins. „Þetta er hræðilegt. Þessi hráa lauklykt er rosaleg,“ bætti hann við.
Sigurður tók fram að þetta væri ekki það eina sem hefði breyst því hann kveðst finna lauklykt af nær öllu sem kemur út úr honum. Þá kveðst hann finna skrýtna lykt af uppáhaldssápunni sinni og rakspíra svo eitthvað sé nefnt.