Sigurður G. tætir í sig dóminn í máli Ingólfs: Friðhelgi einkalífs afnumið í þágu byltingar

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður segir að dómari í máli Ingólfs Þórarinssonar gegn Sindra Þór Sigríðarsyni hafi afnumið friðhelgi einkalífs og æruvernd í þágu byltingar.

Sigurður segir þetta í pistli á Facebook-síðu sinni en eins og kunnugt er var Sindri Þór sýknaður af því að hafa látið ærumeiðandi ummæli falla í garð Ingólfs. Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari kvað upp dóminn.

„Héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur afnam með dómi í gær í máli Ingólfs Þórarinssonar gegn Sindra Sigríðarsyni friðhelgi einkalífs og æruvernd í nafni byltingar.

Það er ekki í fyrsta sinn sem hugmyndafræði um betri heim hefur verið talin mannréttindum æðri,“ segir Sigurður sem er í hópi reynslumestu starfandi lögmanna landsins.

„Boðskapur dómarans er sá, að í nafni tjáningarfrelsis sé sérhverjum frjálst að bera sakir á samborgara sína, troða þá niður í svaðið, hafa af þeim lífsviðurværi sitt, ef tjáandanum finnst hann vera að vinna að framgangi ríkjandi hugmyndafræði og telur sig vera að segja satt og rétt frá og getur stutt þá tilfinningu sína með framburði skoðanasystkina,“ segir Sigurður sem er augljóslega ósáttur við þessa niðurstöðu.

„Fyrirspurnum, eins og sú sem fylgir með færslu þessari og birtist á samfélagsmiðlum í haust hlýtur því að fjölga, enda virðist margir vera Sindrar Sigríðarsynir inn við beinið og sumir taldir hrein þjóðargersemi.“