Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, birtir skjáskot af afar ljótum skilaboðum birtust á Twitter á dögunum og var beint að honum.
„Alltaf gaman að fá góðar og fordómalaus kveðjur. Mér hlýnaði um hjartaræturnar, sem eru og hafa verið í góðu lagi. Enginn veit þó ævi sína fyrr en öll er,“ segir Sigurður í færslu á Facebook en skilaboðin sem um ræðir voru skrifuð við færslu Ólafar Töru Harðardóttur sem er meðlimur í Öfgum.
Ólöf Tara birti þá færslu þar sem hún fullyrti að Sigurður væri lögmaður þeirra sem sakaðir hafa verið um brot gegn Vítalíu Lazareva sem mikið hefur verið fjallað um síðustu daga.
Í athugasemd við færsluna sagði notandi sem kallar sig Eva Luna: „Vonandi drepst hann fljótlega úr hjartaáfalli, hann er jú orðinn ca. 70 ára.“
Sigurður er ýmsu vanur í störfum sínum sem lögmaður og bætir við færslu sína:
„Mér sýnist ég þó hafa lifað réttarríkið og þá grunnreglu þess að sekt sé sönnuð fyrir sjálfstæðum og óháðum dómstólum. Takk hjörtun mín.“