Sigurður fengið nóg: „Hvar endar þessi vitleysa?“ – Aron Einar fórnarlamb útskúfunar

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður er ekki sáttur við vinnubrögð Knattspyrnusambands Íslands í máli landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar.

Eins og greint var frá í gær var Aron Einar, sem er einn leikjahæsti og reynslumesti leikmaður landsliðsins, ekki valinn í hópinn fyrir komandi verkefni í undankeppni HM. Ástæðan er meint kynferðisbrot hans árið 2010.

Aron sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið og sagðist hafa verið settur saklaus til hliðar í nýrri útilokunarmenningu KSÍ. Þvertók hann í yfirlýsingu sinni fyrir það að hafa beitt nokkra manneskju ofbeldi á lífsleiðinni.

Sigurður gerði ummæli landsliðsþjálfarans Arnars Þórs Viðarssonar að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í gær en á blaðamannafundi þar sem valið á landsliðshópnum var kunngjört sagði Arnar Þór að hann og aðstoðarþjálfarinn, Eiður Smári Guðjohnsen, væru mótfallnir öllu ofbeldi af hvaða tagi sem er.

Sigurður gefur lítið fyrir þau ummæli ef marka má færslu hans.

„Hvar endar þessi vitleysa. Merkileg yfirlýsing landsliðsþjálfara. Eru mótfallnir ofbeldi, eins og forseti Íslands segist vera, en taka svo þátt í ofbeldi með útskúfum landsliðsmanna, nú síðast þess leikmanns sem þjónað hefur íslenskri knattspyrnu betur en flestir aðrir.“