Sigurður Þórólfsson flugáhugamaður hefur blásið til undirskriftasöfnunar á vefnum Change.org þar sem han skorað er á Icelandair að breyta ekki um litaþema á flugflota sínum.
Morgunblaðið greindi frá því um helgina að breytingar væru fyrirhugaðar á litum Icelandair-vélana. Blár, hvítur og gylltur hafa einkum verið notaðir í markaðsstarfi Icelandair en á næsta ári verður fjölbreyttari litaþema tekið upp.
Þessar breytingar fara ekki vel í alla og er Sigurður einn af þeim sem vilja helst halda litunum óbreyttum. Hann segir í samtali við mbl.is í dag að í fyrstu hafi hann talið að um grín væri að ræða en svo reyndist ekki vera.
„Fyrst þegar ég sá þessa nýju hugmynd þá hélt ég að þetta væri eitthvað grín, en svo virðist sem þetta er ekki grín. Síðan sá ég að fólk var að gagnrýna nýja útlitið mikið, hvað þetta væri hræðilegt og að þetta væru mikil mistök. Ég var sammála því þannig ég ákvað að gera svona undirskriftasöfnun,“ segir hann við mbl.is.
Hann er þó ekkert sérstaklega vongóður um að Icelandair dragi fyrirhugaðar breytingar til baka þó margir skrifi undir.
„Ekki séns, ég veit ekki nema 80 þúsund manns myndu skrifa undir þá kannski en ég er ekki að búast við því. Ég myndi samt vilja að forsvarsmenn Icelandair sæju þennan undirskriftalista þótt það myndu bara 20 manns skrifa undir,“ segir hann við Morgunblaðið.