Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, minntist Hrafns Jökulssonar rithöfundar og skálds með hlýjum orðum á Facebook-síðu sinni í gær.
Hrafn lést um helgina eftir stutta og harða baráttu við illvígt krabbamein í hálsi. Hrafn var rétt tæplega 57 ára þegar hann lést, fæddur 1. nóvember 1965.
Í færslu sinni segir Sigurður Árni að Hrafn hafi komið reglulega í Hallgrímskirkju síðustu vikurnar, bæði til að kveðja og opna inn í eilífðina.
„Þegar hann fór í næst-síðasta sinn sagði hann. „Þú kannt að hlusta.“ „Og þú að tala“ svaraði ég. Hrafn hló og þakkaði fyrir að hafa fengið viðmælanda í hliði himinsins til að kanna djúpin. Skáldpresturinn er þarna að baki honum og svo líka færeyski kútterinn. Hrafn hefur nú kvatt og siglt inn í hvíta skuggann.“