Sigur­borgu brugðið í morgun: „Ég þurfti að öskra á son minn til að bjarga honum“

Sigur­borg Ósk Haralds­dóttir, borgar­full­trúi og for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs, var brugðið í morgun. Minnstu munaði að bif­reið hefði verið ekið á sex ára son hennar.

Sigur­borg segir frá þessu á Twitter.

„Var að ganga með 6 ára strumpinum mínum í skólann. Bíll byrjar að bakka úr inn­keyrslu þegar við göngum eftir gang­stéttinni. Ég þurfti að öskra á son minn til að bjarga honum. Ekki í fyrsta skipti sem við lendum í þessu. Þetta gerist í öllu þétt­býli, alla daga,“ segir Sigur­borg sem leggur til á­kveðin at­riði sem gætu komið í veg fyrir skelfi­leg slys.

„Getum við sam­einast um að bakka alltaf inn í inn­keyrslur og stæði? Þannig að áður en öku­maðurinn leggur af stað sér hann alla sem eru á gangi um­hverfis bílinn.“

Sigur­borg segir að fleiri endur­skins­merki hefðu ekki bjargað neinu í þessu til­viki.

„Á­byrgðin á ekki að vera á þeim sem gengur um borgina. Hún á að vera á öku­manninum sem ekur um á nokkra tonna járn­farar­tæki sem getur keyrt yfir börn án þess að tekið sé eftir því.“