Sigur­borg vill lækka há­marsk­hraðann fyrir ára­mót

Sigur­borg Ósk Haralds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur­borgar, segist vonast til þess að hraða­lækkandi að­gerðir í borginni verði sam­þykktar fyrir ára­mót.

„Við erum að skoða hraða­lækkandi að­gerðir um alla borg,“ segir hún í sam­tali við Frétta­blaðið í dag en í fréttinni kemur fram að borgin hafi beðið í­búa­ráð um um­sögn um há­marks­hraða­á­ætlun í haust og nú sé unnið úr þeim at­huga­semdum sem bárust.

Til­lögurnar snúa meðal annars að því að lækka há­marks­hraðinn í hverfum úr 60 niður í 50 og úr 50 niður í 40 eða 30. Þannig er lagt til að há­marks­hraði á Borgar­vegi í Grafar­vogi fari úr 50 niður í 40 og í Vestur­bergi í Breið­holti úr 50 kíló­metrum niður í 30 kíló­metra.