Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, biðlar til ríkisstjórnarinnar um lagabreytingar sem myndu heimila sveitarfélögum að rukka notendur nagladekkja um sérstakt gjald. Hún segir á Twitter:
„Bíll á nagladekkjum mengar 40x meira en bíll á hefðbundnum dekkjum. Það bitnar á öllu fólki sem býr í þéttbýli. Ungabörnum, börnum á leið í skóla, unglingum og fullorðnum. Heilsa fólks bíður skaða af,“ skrifar hún.
Sigurborg segir að skilvirkasta leiðin til að minnka notkun nagladekkja sé að rukka fyrir notkun. „Það virkar til dæmis gríðarlega vel í Noregi þar sem notkun nagladekkja hefur minnkað verulega. Slysatíðni jókst hinsvegar ekki,“ segir hún.
„Þú kaupir einfaldlega passa ef þú ætlar að aka á nagladekkjum í þéttbýli. Árspassa, vikupassa eða dagspassa. Stoppar bara á næstu bensínstöð og málið leyst. Við erum búin að vera að berjast fyrir þessari heimild í mörg ár. Það er löngu kominn tími á þetta.“
Beinir hún svo orðum sínum til formanna stjórnarflokkanna:
„Kæra ríkisstjórn, vinsamlegast standið vörð um heilsu fólks og gefið sveitarfélögum heimild til að rukka fyrir notkun nagladekkja.“