Sigur­borg hjólar í Ragn­hildi Öldu: „Hvernig er hægt að ljúga aftur og aftur í fjöl­miðlum árið 2022?“

Líf Magneu­dóttir borgar­full­­trúi Vinstri grænna var í á­­falli í gær eftir að hafa hlustað á Ragn­hildi Öldu, fram­bjóðanda Sjálf­­stæðis­­flokksins, á Út­­varpi sögu. Líf deildi sögunni á Twitter.

Sigur­borg Ósk Haralds­dóttir, fyrrverandi borgar­full­trúi Pírata, á­kvað að leggja orð í belg í dag og ganga svo langt að kalla Ragn­hildi Öldu sultu.

„Hvernig er hægt að ljúga aftur og aftur í fjöl­miðlum árið 2022. Við vitum öll að þetta er kjaft­æði sem hún er að segja. Hver er eigin­lega til­gangurinn með því að reyna að ljúga að fólki?“ skrifar Sigur­borg í at­huga­semd.

Sigur­borg deilir skjá­skoti af um­mælum Ragn­hildar þar sem hún segist meðal annars ekki vera fylgjandi borgar­línunni, heldur frekar létt­línu­­kerfi, þar sem borgar­línan sé of dýr. Hún segir þetta eitt af þeim at­riðum þar sem borgar­yfir­­völd eru að reyna að stjórna fólki og því hvernig það hagar sínu lífi, þar með talið hvaða sam­göngu­mála það kýs.