Sigurborg fór í gegnum gömul Facebook-skilaboð og fann þessar myndir

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, fann á dögunum gömul skilaboð þegar hún fann nýja möppu í Messenger-spjallforriti Facebook.

„Ég var að að finna möppu inní Messenger undir Message requests og þar undir Spam. Fullt af góðu stöffi búið að safnast þar. Til dæmis þessi frábæra myndasería sem ég fékk senda,“ sagði Sigurborg á Twitter og birti myndir frá manni sem hafði fyrir því að senda henni fingurinn í bókstaflegri merkingu þess orðs.

Sendandi skilaboðanna var augljóslega nokkuð vanstilltur þegar hann sendi henni umrædd skilaboð en í þeim gagnrýndi hann meint hatur Sigurborgar á einkabílnum. „Er bara takmarkið hjá þér stelpuasninn þinn að útrýma einkabílnum og neyða alla í strætó af því þið Dóra Björt hatið bíla?“ Í kjölfarið fylgdu svo minnst fimm myndir af miðfingri mannsins.

Fjörugar umræður spunnust um þetta á Twitter-síðu Sigurborgar og sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata:

„Puttar í pósti. Áhugavert konsept. En við erum náttúrlega sundurslitnar af hati. Spúum eldi yfir heimsbyggðina dag hvern. Og rústum Pírötum í leiðinni. Sem mælast reyndar inni í Reykjavík með tvöfaldan stuðning frá því síðast þessi dægrin but who’s counting.“