Miklar umræður hafa skapast um aðstæður fyrir hjólafólk við Hafnartorg í Reykjavík. Þykir sumum undarlegt að hjólabogar séu á umferðareyju við torgið þar sem umferð er þónokkur og hefur Reykjavíkurborg verið gagnrýnd vegna þessa.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, segir í ummælum við færslu Björns Teitssonar um hjólabogana í Facebook-hópnum Samtök um bíllausan lífsstíl að umferðarþunginn skrifist á Seltjarnesbæ.
„En því miður er enn þá mjög mikil bílaumferð um götuna og getum við þakkað Seltjarnarnesi fyrir það,“ skrifar Sigurborg. Borgin hafi reynt að fá lóðarhafa við Hafnartorg til að koma þar upp hjólastæðum en ekki átt erindi sem erfiði. Þar sem deiliskipulag svæðisins hafi verið samþykkt áður en reglur um hjólastæði voru settar sé það lóðarhafa í sjálfsvald sett hvort hann kjósi að koma þeim upp.
„Í sambærilegu deiliskipulagi sem væri gert í dag yrðu gerðar kröfum um mörg hundruð hjólastæði í bílakjallara og vönduð hjólastæði við alla innganga á yfirborði,“ skrifar hún. Borgaryfirvöld hafi ítrekað fundað með lóðarhafa og óskað eftir hjólastæðum á lóðinni.
„Óhætt er að fullyrða að lóðarhafi hafi verið mjög tregur í taumi og endaði það samtal með því að ég lýsti því opinberlega að hönnun göngugatnanna á Hafnartorgi væri mikil vonbrigði.“