Sigurbjörn Gunnarsson, áhugamaður um miðborgina, segir að stórslys sé í uppsiglingu í miðborg Reykjavíkur. Sigurbjörn vekur athygli á þessu í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.
Sigurbjörn segir að í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar hafi staðið til að byggja nýtt stjórnarráðshús, eða „heljarmikinn steinkassa“ eins og hann orðar það, á Bernhöftstorfunni svokölluðu.
„Sem betur fer tókst að forða því stórslysi m.a. fyrir tilstilli áhugafólks sem mætti einn morguninn og málaði gömlu húsin sem stóðu þar mörg hver í niðurníðslu. Þau voru síðan hvert af öðru gerð upp og gefa í dag miðbæ Reykjavíkur mikinn svip. Í dag stöndum við frammi fyrir öðru stórslysi hinum megin við Bankastrætið því þar stendur til að troða nýju stjórnarráðshúsi fyrir aftan gömlu stjórnarráðsbygginguna,“ segir hann.
Sigurbjörn segir að þar sem enn er ekki byrjað að byggja sé enn hægt að forðast að eyðileggja svæðið með húsi sem á engan veginn heima þar.
Hann gerir ekki lítið úr því að forsætisráðuneytið sé í húsnæðishraki með sína starfsemi en lausnin á því liggi í augum uppi.
„Innan skamms mun Landsbankinn, sem er nánast að fullu í eigu ríkisins, flytja í nýtt húsnæði milli Hörpu og Hafnartorgs. Það væri því kjörið að flytja forsætisráðuneytið í gamla Landsbankahúsið við Austurstræti. Þetta er virðulegt hús, vel viðhaldið á góðum stað sem hæfir vel forsætisráðherra og ríkisstjórnarfundir myndu sóma sér vel í gamla bankaráðsherberginu. Það er nóg pláss í Landsbankahúsinu fyrir hina 55 starfsmenn ráðuneytisins og jafnvel hægt að bæta við nokkrum fjölmiðlafulltrúum og aðstoðarmönnum. Þá verður líka enn þá styttra fyrir Katrínu að skokka yfir á Alþingi!“
Sigurbjörn veltir því svo upp hvað eigi að gera við gamla Stjórnarráðshúsið á Lækjartorgi. Hann bendir á að ráðuneytið hafi lengi vel deilt húsi með skrifstofu forseta Íslands þar til Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, nennti ekki að hafa Ólaf Ragnar lengur í næsta herbergi og forsetinn flutti út á Sóleyjargötu.
„Því liggur beinast við að flytja skrifstofu forsetans á ný í stjórnarráðsbygginguna þegar ráðuneytið verður farið. Aðalmálið er þó að enn má forðast það yfirvofandi slys sem nýbygging stjórnarráðsins er og raunar er stórundarlegt að ríkið skuli vera að byggja skrifstofuhúsnæði í miðborginni þegar fyrir liggur að þúsundir fermetra skrifstofuhúsnæðis eru að losna þar þegar Landsbankinn flytur, auk þess sem fram hefur komið að bankinn hyggst leigja eða selja frá sér hluta nýbyggingarinnar.“