Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólastjóri og þekktasti íþróttalýsandi landsins, skilur ekkert í því sem sagt var um Guðrúnu Arnardóttur, frjálsíþróttakonu á Íþróttamanni ársins í gær.
Guðrún var tekin inn í heiðurshöll ÍSÍ í gærkvöldi og var farið yfir feril hennar áður en hún var kynnt inn.
„Svooooo stoltur af henni. Einn sá allra besti íþróttamaður sem Ísland hefur eignast. Ég er hins vegar gáttaður á þeirri steypu sem lesin var upp um hana í kvöld. Sjöunda á OL 1996 í Atlanta??? Nei þar fór hún í undanúrslit og fékk í kjölfarið styrk til þess að stunda æfingar og henni fannst þess vegna hún skulda íslensku þjóðinni að æfa fram yfir OL i Sidney 2000,“ skrifar Sigurbjörn.
„Þar varð hun svo sjöunda á besta ólympíuári Íslandssögunnar. Svo stundaði hún sitt nám við University of Georgia en keppti alltaf á hverju ári á Drake relays með frábærum árangri og var þess vegna tekin inn í heiðurshöllina þar. Þekkir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ ekki sitt íþróttafólk Andri Stefánsson og Lárus Blöndal? Ég alla vega neita að trúa því að RÚV Íþróttir beri nokkra ábyrgð á þessu,“ bætir hann við.
Sigurbjörn ætti að þekkja þetta manna best enda hefur hann lýst nær öllum frjálsíþróttamótum á RÚV sl. ár.
Fjölmargir taka undir með Sigurbirni í athugasemdum.
„Takk fyrir að ræða þetta Bjössi, ég var svekkt yfir kynningunni , hún er mjög vel er að þessum heiðri komin,“ skrifar Valgerður Auðunsdóttir.
„Leiðinlegt að svona gerist,“ skrifar Helga.