„Það er greinilega enginn samkeppni hjá tryggingafélögum hérna,“ segir Sigurbjörn Vilhjálmsson sem leitaði á dögunum eftir tilboði í tryggingar frá tryggingafélögunum.
Sigurbjörn vakti athygli á þessu í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi og veitti hann Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta færsluna um málið.
Í færslu sinni tók Sigurbjörn dæmi um tilboð sem hann fékk frá fjórum tryggingafélögum í 2012 árgerðina af Toyota Land Cruiser 150. Það sem vakti athygli hans var hversu lítill munur var á hæsta og lægsta tilboðinu eða, 12 þúsund krónur.
Tilboðin sem Sigurbjörn fékk voru svona:
156.677 kr.
154.960 kr.
154.696 kr.
169.481 kr.
Hann tekur fram að í síðasta tilboðinu, þessu sem var upp á rúmar 169 þúsund krónur, kemur til endurgreiðsla ef viðkomandi er tjónlaus og þá sé viðkomandi tryggingafélag á sama plani og hin.
„Maður gæti haldið að þeir hringdu í hvorn annan áður en þeir gefa manni tilboð. Það vantar alveg Costco-tryggingafélag hérna,“ segir hann.
Margir hafa tjáð sig undir færslunni og taka margir undir það að verðin hjá tryggingafélögunum séu mjög svipuð. „Fékk tilboð frá öllum um daginn, ótrúlega svipaðar upphæðir. Hvar er samkeppniseftirlitið?,“ segir í einni athugasemdinni. Þá tekur annar undir það að þörf sé á einhverskonar Costco-tryggingafélagi hér á landi.