Sigurbjörn Árni Magnússon, skólameistari á Laugum og ástríðufulli íþróttalýsandinn, opnar sig um krabbameinið sem hann greindist með í fyrra í hlaðvarpinu Fokk ég er með krabbamein sem er unnin í samstarfi við Vísi.
Sigurbjörn greindist með ólæknandi sortuæxli og segist vera búinn að hugsa meira um jarðarförina en að deyja. Hann ætlar sjálfur að flytja líkræðuna í jarðarförinni sinni og fá síðasta orðið.
Hann segist hafa vaknað og þá væri „eitthvað“ búið að poppa út úr kviðnum á sér. Eins og einhver útferð. „Ég hélt fyrst að þetta væri kviðslit nema ég náttúrulega fann ekki fyrir neinu,“ segir Sigurbjörn.
Eftir læknisheimsóknir kom í ljós að hann var með fjórða stigs sortuæxli sem væri búið að dreifa sér. Hann lýsti Reykjvíkurleikunum einungis tveimur dögum síðar en þetta gerðist fyrir um ári síðan.
„Þetta er náttúrulega bara í lang lang langflestum tilfellum dauðadómur,“ segir Sigurbjörn í hlaðvarpinu. Sigurbjörn er áfram í fllu starfi og segir að á sama tíma og hann hefur áhyggjur af fjárhag fjölskyldunnar ef hann fellur frá þá er tilfinningin mjög sterk að vilja tryggja góða afkomu þeirra í framtíðinni.
Hann og eiginkona hans voru byrjuð að spá í því hvað þau ætluðu að gera í næsta fasa lífisins og hvernig þau ætluðu að njóta þess að eldast saman. „Mig langar að lifa og mig langar að verða gamall með konunni minni,“ segir Sigurbjörn.
Hægt er að hlusta á viðtalið við hann í heild hér