Sigurbjörg ósátt: Nýi bæjarstjórinn fær 160 þúsund á mánuði vegna aksturs

Sigur­björg Erla Egils­dóttir, bæjar­full­trúi Pírata í Kópa­vogi, bókaði mót­mæli við ráðningar­samning Ás­dísar Kristjáns­dóttur, bæjar­stjóra Kópa­vogs, á fundi bæjar­stjórnar í gær.

„Í ráðningar­samningi nýs bæjar­stjóra Kópa­vogs í boði xB og xD er kveðið á um fasta mánaðar­lega greiðslu vegna aksturs sem nemur 1250 kíló­metrum (að upp­hæð 158.750 króna, skatt­frjálst) í hverjum mánuði út kjör­tíma­bilið. Þetta er ROSA­LEGA mikill akstur og engin rök fyrir slíku á­kvæði. Þetta jafn­gildir um 60 kíló­metra akstri hvern einasta vinnu­dag. Hvern. Einasta. Vinnu­dag,“ skrifar Sigur­björg Erla í Face­book.

„Það er engin þörf fyrir bæjar­stjóra Kópa­vogs til að keyra svona mikið vegna starfa sinna, en þess má jafn­framt geta að Kópa­vogs­bær á og rekur nokkra raf­bíla sem standa starfs­fólki stjórn­sýslunnar til boða þegar það þarf að fara úr húsi til að reka erindi.

Á­kvæðið stingur jafn­framt í stúf við bæði yfir­mark­mið Kópa­vogs­bæjar, Heims­mark­mið sam­einuðu þjóðanna, og mál­efna­samning meiri­hlutans þar sem fjallað er um mikil­vægi þess að vanda vel til verka þegar kemur að um­hverfis­málum, og að vist­vænir ferða­mátar og virðing gagn­vart um­hverfinu leiki þar lykil­hlut­verk. Það að bæjar­stjóri Kópa­vogs fyrir­hugi að aka 60.000 kíló­metra á kjör­tíma­bilinu setur ekki gott for­dæmi,“ skrifar Sigur­björg.

Hún segir síðan að það skal engan undra að í um­ræddum mál­efna­samningi Fram­sóknar og Sjálf­stæðis­flokks sé ekki orði minnst á Borgar­línu, strætó eða al­mennings­sam­göngur.