Sigur­björg ó­sátt með risa aug­lýsinga­skilti í Kópavogi: „Þurfa flokkar í meiri­hluta ekki að lúta að sömu reglum og aðrir“

Sigur­björg Erla Egils­dóttir, bæjar­full­trúi Pírata í Kópa­vogi, er allt annað en sátt með aug­lýsingar Fram­sóknar­flokksins í Lindunum í Kópa­vogi.

„Tvö gígantísk skilti birtust ný­lega við Skógar­lind í Kópa­vogi þar sem Fram­sóknar­flokkurinn aug­lýsir fram­boð sitt fyrir kosningarnar. Það eru sex dagar síðan ég fékk stað­fest frá um­hverfis­sviði bæjarins að hvorki byggingar­deild né skipu­lags­deild hafa fjallað um, hvað þá gefið leyfi fyrir, skiltum á þessum stað. Sama dag spurði ég hvort það stæði þá ekki til að krefja lóðar­hafa um að fjar­lægja skiltin en hef engin svör fengið þrátt fyrir í­trekanir,“ skrifar Sigur­björg á Face­book.

„Í haust fyrir þing­kosningarnar hengdi stuðnings­aðili annars fram­boðs (sem er í minni­hluta í Kópa­vogi) skilti utan á grind­verkið hjá sér en þegar í ljós kom að slíkt var leyfis­skylt var við­komandi gert að fjar­lægja aug­lýsingarnar sam­dægurs. Þurfa flokkarnir sem sitja í meiri­hluta í bæjar­stjórn Kópa­vogs ekki að lúta sömu reglum og aðrir?“ spyr hún að lokum.