Sigur­bergur: „Ég veit hvernig það er að lenda í þessu“ – Farið var­lega um jólin

„Ég held við ættum öll bara að anda tvisvar, þrisvar, vera ekki að flýta okkur og missa þetta ekki í fjórðu bylgju. Ég veit hvernig það er að lenda í þessu. Þó jólin verði öðru­vísi hjá okkur þá kemur þetta,“ sagði Sigur­bergur Páls­son, 58 ára tré­smiður úr Borgar­nesi, í kvöld­fréttum RÚV í gær­kvöldi.

Í fréttinni kom fram að um tuttugu manns væru nú í líkam­legri og and­legri endur­hæfingu á Reykja­lundi eftir að hafa glímt við CO­VID-19. Um sex­tíu manns sem greindust í fyrstu bylgju far­aldursins hér á landi bíða eftir að komast í endur­hæfingu.

Sigur­bergur smitaðist af veirunni í mars síðast­liðnum, en í fréttinni mátti meðal annars sjá Sigur­berg gera æfingar í sundi og þreyta þrek­próf á hjóli til að mæla út­hald og há­marks­á­reynslu­getu.

Sigur­bergur hefur glímt við orku­leysi og seyðing fyrir brjósti en hann smitast af veirunni í lok mars­mánaðar. „Ég var þarna á spítala í ein­hverja 17 daga,“ sagði hann og bætti við að upp­lifunin hafi verið skelfi­leg. „Ég vissi ekkert hvort maður færi lá­réttur eða lóð­réttur út,“ sagði hann.

Segja má að endur­hæfingin á Reykja­lundi sé eins og full vinna, en Sigur­bergur mætir klukkan 8 á morgnana og er til klukkan 16. Fólk hefur ýmis­legt fyrir stafni; fer í göngu­túra, sjúkra­þjálfun, sund og situr fyrir­lestra svo eitt­hvað sé nefnt.

Sigur­bergur segist allur vera að koma til og hann ætli sér aftur að fara í 100% vinnu. Hann hvetur fólk ein­dregið til að fara sér hægt á næstunni svo far­aldurinn fari ekki á flug aftur. Tíu ein­staklingar greindust með veiruna á laugar­dag saman­borið við fimm laugar­daginn þar á undan. Hefur ný­gengi smita hér á landi þokast upp á við aftur. Nýjar tölur um fjölda smita birtast klukkan 11 á vefnumCO­VID.is á degi hverjum.