Sigtryggur Bald: Hætt við offramboði tónleika í haust

Hundruð íslenskra tónlistarmanna hafa misst tekjur sínar á síðustu vikum, á þeim tíma árs sem vanalega gefur þeim mestar tekjurnar. Óttast er að tekjumissirinn verði viðvarandi á sumri komanda – og hætt er við að viðspyrnan í haust, ef af henni verður, nýtist aðeins hluta hópsins.

Þetta kemur fram í samtali þeirra Sigtryggs Baldurssonar, framkvæmdastjóra hjá Útón, útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar og Sigmundar Ernis í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, en þar er farið yfir þau sögulegu tíðindi að háönn listamanna á því herrans ári 2020 er að engu orðin. Í viðtalinu segist Sigtryggur óttast að eftir afleita útmánuði og tekjurýrt sumar ætli allir hljómlistamenn að reyna að rétta stöðu sínu með stórtónleikum eða tónleikaröðum í haust, en augljóst sé að þar komist ekki allir að þótt ekki væri fyrir aðrar sakir en að flestir ef ekki allir tónleikastaðir og tæki eru þegar fullbókaðir. Hann kvíðir því jafnframt að margir tónleikastaðir, viðburðafyrirtæki og tækjaleigur lifi harðindin ekki af – og það muni gera tónlistarfólki endurreisnina enn erfiðari. Nú sé hins vegar unnið að því að létta músíköntum róðurinn, ráðuneyti mennta og menningar hafi afráðið að leggja til hálfan milljarð til listgreinanna í landinu – og hvað tónlistina varði verði boðið upp á verkefnastyrki til að spyrna við fótum; þar sé mikilvægast að mati Sigtryggs að koma peningunum hratt og vel út svo menn geti hent sér í verkefnin sem fyrst – og listalífið taki þar af leiðandi eins fljótt við sér og nokkur kostur er.