„Eru börn í alvörunni ennþá að fá kartöflur í skóinn?,“ spyr Sigrún Skaftadóttir, fyrrverandi formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og plötusnúður, á Twitter. Innlegg hennar hefur vakið mikil viðbrögð hjá öðrum mæðrum.
Sigrún segir:
„Er ekki mikið fyrir að foreldra shame-a en ég mun gera það við þá foreldra sem gefa kartöflu í skóinn. Það er nógu erfitt að vera barn fyrir jólin í þessu þrota covid landslagi.“
Margar mæður taka undir með henni, þar á meðal Kristrún nokkur sem segir:
„Fyrir utan hvað refsingar duga skammt þá duga refsingar (frá einhverjum sem á að vera bara næs) daginn eftir enn verr. Ótrúlega skrítin aðferð.“
Notandinn VanHoppum segir kartöflur ekki eiga heima í sínu uppeldi:
„Þegar börnin mín fara að sofa á kvöldin er óþekkt dagsins grafin og gleymd, næsti dagur er nýr og það hefur ekkert upp á sig að byrja hann á að rifja upp leiðindi gærdagsins.“
Máney tekur í sama streng:
„Mér finnst frekar spes að láta einhverja ókunnuga kalla sem búa uppi fjalli pæla í því hvort barnið mitt sé stillt eða ekki. Það hafa allavega aldrei komið kartöflur á þetta heimili.“