Sigrún selur æðislegt hús í Danmörku – Verðið gæti komið þér á óvart

Auglýsing sem birtist í einum fjölmennasta Facebook-hópi landsins, Brask og brall, hefur vakið talsverða athygli en um er að ræða fasteignaauglýsingu þar sem býsna snoturt hús á Fjóni í Danmörku er auglýst til sölu.

„Fallega húsið okkar á Fjóni í Danmörku er til sölu. Það er 5,5 km í næsta bæ, 7,5 á næstu strönd, 25 km til Óðinsvé og 2 tímar til Þýskalands í aðra áttina og 2 tímar til Kaupmannahafnar í hina áttina. Það er skógur í bakgarðinum. Friður og ró og falleg náttúra. Kostar rétt um 12 millj. Ísk,“ segir eigandinn Sigrún Baldvinsdóttir, en ásett verð er 595 þúsund danskar krónur.

Margir virðast áhugasamir um húsið sem er býsna snoturt eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Samkvæmt fasteignaauglýsingu á vefnum edc.dk var húsið byggt árið 1827, það er 92 fermetrar í það heila, á lóð sem telur tæpa 1.500 fermetra en í húsinu eru tvö svefnherbergi.

Í auglýsingu fasteignasölunnar kemur fram að húsið sé í góðu standi, það hafi fengið gott viðhald og stráþakið sem má sjá á myndinni hér að ofan sé frá árinu 2000. Þá var eldhúsið tekið í gegn árið 2014 og baðherbergið árið 2005.

Nánari upplýsingar má nálgast hér.