Sigrún með ákall til íslenskra hótela: „Stemningin var alveg í mínus“

Sigrún Stefánsdóttir, fréttakona til margra ára og fyrrverandi forseti hug- og félagsvísindasviðs við Háskólann á Akureyri, kallar eftir því að fleiri hótel hér á landi bjóði upp á matseðil fyrir börn.

Sigrún er pistlahöfundur á vefnum Lifðu núna þar sem hún birtir þessar hugleiðingar sínar.

Í pistlinum segist Sigrún hafa nýverið lesið viðtal við norsk hjón sem fóru í ferð í fyrrasumar með börnin um eigið land vegna kórónuveirufaraldursins. Hápunkturinn var gisting á hóteli í Þrándheimi og var ástæðan einna helst morgunverðurinn sem var sérstaklega sniðinn að ungu kynslóðinni. Var um að ræða ógleymanlega ferð fyrir börnin sem setti hótelið á topplista þeirra.

Hvorki hamborgarar né pasta

„Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar við gamla settið fórum í dekurferð með tvo ömmustráka á glæsilegt hótel með kvöldverði og morgunmat. Þeir fóru í heitan pott, með svaladrykk og rör, og ræddu um væntanlegan kvöldverð,“ segir Sigrún og bætir við að sá eldri hafi ætlað að fá sér hamborgara og sá yngri pasta.

„Hógværar væntingar það!  Við klæddum okkur upp á eins og maður gerir á fínu hóteli og mættum á umsömdum tíma til kvöldverðar. Þegar ég pantaði gistinguna hafði ég sérstaklega spurt hvort maturinn væri ekki við hæfi barna. Ég var fullvissuð um að það væri alltaf hægt að gera eitthvað gott fyrir þau. Við fáum matseðlana. Þar voru hvorki hamborgarar né pasta,“ segir Sigrún og bætir við að þumbaralegur ungur maður hafi bent þeim á að ekkert annað væri í boði en það sem er á matseðlinum.

Viðskiptavinir framtíðarinnar

„Uppábúið andalæri og nautasteik í framandlegri múss og svo framvegis. Sá eldri lagði höfuðið á borðbrúnina og sagðist ekki vera svangur. Stemningin var alveg komin í mínus. Þá kom annar þjónn til sögunnar. Hún las stöðuna rétt og sagði að það hlyti að vera hægt að bjarga pasta og frönskum. Það birti yfir þeim eldri. Hún kom aftur að vörmu spori og sagði að því miður væri ekki til pasta. Þeir gætu fengið heita samloku með frönskum. Við gerðum eina gæs fótalausa. Hótelið mátti eiga það að rukka ekki fyrir mat strákanna. Óumbeðið,“ segir Sigrún.

Í pistlinum bendir hún á að COVID hafi breytt svo mörgu, til dæmis því að nú séu Íslendingar farnir að ferðast meira innanlands og gista á hótelum, jafnvel með börn.

„Til þess að þessi nýi hópur viðskiptavina upplifi dvölina á jákvæðan hátt, þarf að vera í boði matur við þeirra hæfi. Virðulegt hótel missir ekki stílinn við að hafa í boði það sem börnum þykir gott, heldur þvert á móti. Þau eru viðskiptavinir framtíðarinnar. Barnamatseðill tryggir upplifunina og gerir það að verkum að ferðalangar af ólíkum kynslóðum sofna glaðir og mettir í þægilegum rúmum í hótelherbergi með útsýni yfir hafið.“