Sig­rún Helga í losti eftir sím­tal: „Pössum uppá hvert annað“

„Ég er í smá losti eftir sím­tal frá klökkum pabba sem þakkaði mér fyrir að hafa bjargað lífi sonar síns,“ segir Sig­rún Helga Lund töl­fræðingur.

Sig­rún Helga stöðvaði hópslags­málin í mið­bænum um helgina en Sig­rún er fyrr­verandi Ís­lands- og Evrópu­­meistari í Brasilísku Jiu Jitsu.

Sig­rún segir frá um­ræddu sím­tali á Twitter-síðu sinni en hún var inni á Session Craft Bar með vin­konu sínu þegar þær sáu slags­málin fyrir utan.

„Ég spretti bara út þegar ég sá að það var hópur að sparka í liggjandi mann. Það eina sem ég gerði var að hlaupa inn í hópinn og skamma þá, þá fuðraði hópurinn upp um leið,“ sagði Sig­rún Helga í sam­tali við Frétta­blaðiðá mánu­dag og bætti við:

„Ég veit ekki hversu mikið á að þakka mér fyrir að stöðva slags­­málin.“

Að minnsta kosti einn faðir sá þó á­stæðu til að hringja í Sig­rúnu og þakka henni fyrir, enda ljóst að ein­staklingar geta hlotið al­var­leg meiðsl, sér­stak­lega þegar sparkað er í þá liggjandi eins og sást á mynd­bands­upp­tökum frá því á laugar­dags­kvöldið.

„Pössum uppá hvert annað og segjum nei við of­beldi,“ segir Sig­rún í færslu sinni á Twitter sem vakið hefur tals­verða at­hygli. Meðal þeirra sem senda Sig­rúnu góða kveðju er Dagur B. Eggerts­son borgar­stjóri.

„Frá­bær­lega gert og ó­trú­lega hug­rakkt. Þér er ekki fisjað saman! Takk inni­lega fyrir þína fram­göngu!“