Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, vill ekki að Íslandsbanki verði seldur, heldur fái allir Íslendingar hlut í bankanum. Í grein sem hún skrifar í Morgunblaðið í dag segir hún að kominn sé tími til að hrinda í framkvæmd áratugagamalli hugmynd. „Að ríkið afhendi landsmönnum öllum jafnan hlut í bönkunum til eignar,“ segir hún. Ekki sé til betri leið til að dreifa eignarhaldi og þá verði ekki hægt að saka neinn um að afhenda bankann útvöldum.
Hugmyndina fær hún frá Eyjólfi Konráð Jónssyni, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins og þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem hvatti mjög til þátttöku almennings í hlutafélögum. Hvetur hún efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis til að leggja fram frumvarp þessa efnis.
„Ég hvet nefndina til að taka af mér ómakið og leggja fram frumvarp til laga um afhendingu drjúgs hluta í Íslandsbanka til landsmanna á árinu samhliða fyrirhuguðu hlutafjárútboði.“
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, fjallar um þetta á vef sínum í dag. „Það er ánægjulegt að sjá í Morgunblaðinu í dag að hugsjónir Eyjólfs Konráðs Jónssonar, fyrrum alþingismanns og ritstjóra Morgunblaðsins eru komnar á dagskrá á ný,“ segir hann. „Það verður spennandi að fylgjast með því, hvaða undirtektir hugsjónir Eykons fá nú í Sjálfstæðisflokknum og á Alþingi.“