Sigríður Andersen, fyrrverandi ráðherra, veltir upp þeirri spurningu hvort hugsanlegt sé að
fjöldi fólks hafi verið sendur í einangrun að ósekju. Segir hún í pistli á Facebook í dag að með skimunum ferðamanna á landamærum hafi verið komist að því að stór hluti þeirra sem greindust smitaðir voru ekki með virkt smit.
„Við skimanir innanlands hefur ekki verið gerður greinarmunur á virkum og óvirkum smitum heldur hafa allir verið settir undir sama hatt og allir greindir smitaðir settir í einangrun. Hví hefur þessari vísindalegu nálgun ekki verið beitt á landsmenn en bara útlendinga?,“ spyr hún.
„Landamæraskimanirnar bentu til þess að fjórðungur smita væri óvirk smit. Hingað til hafa greinst um 50 þúsund smitaðir innanlands og allir sendir í einangrun. Ef vísindin mættu tala um þennan hóp þá hljótum við að spyrja hvort að 12.500 af þessum greindu smitðum frá upphafi hefðu verið með óvirk smit. 12.500 manns sem hefðu verið sendir í einangrun að ósekju og fólk í kringum það í sóttkví!“
Hún segir að þessi tölfræði um virk og óvirk smit á landamærum sé ekki lengur að finna á upplýsingasíðu stjórnvalda. Hún bætir við: „Og það sem mestu máli skiptir í dag: Eru nokkur hundruð af þeim þúsund manns sem greinast á hverjum degi þessa dagana með óvirk smit? Við þessari spurningu þarf að fá svar.“