Sig­ríð­ur slær á orð­róm um fram­boð fyr­ir Mið­flokk­inn

Sig­ríð­ur Á. Ander­sen, þing­kon­a Sjálf­stæð­is­flokks í Reykj­a­vík, mun ekki taka sæti á list­a flokks­ins í Reykj­a­vík fyr­ir kom­and­i kosn­ing­ar. Hún náði ekki einu af átta efst­u sæt­um list­ans og hef­ur því tek­ið þá á­kvörð­un taka ekki sæti.

„Nú er þett­a í hönd­­um kjör­­nefnd­­ar­­inn­­ar. Próf­­kjör­ið er ekki bind­­and­i og kjör­­nefnd fer með upp­­röð­un á list­a, vænt­­an­­leg­a í sam­r­æm­i við nið­ur­­­stöð­u próf­­kjörs­­ins. Þann­ig að ég er að segj­a það að ég geri enga kröf­u um sæti á list­a,“ seg­ir Sig­ríð­ur á Fac­e­bo­ok.

Sig­ríð­ur seg­ist ekki á leið í fram­boð fyr­ir ann­an flokk en ein­hverj­ir hafa gert að því skónn­a að hún gæti far­ið fram fyr­ir Mið­flokk­inn. Hún sé á­vallt til­bú­in til að leggj­a sjálf­stæð­is­stefn­unn­i lið, sem „sam­ein­ar í­halds­sem­i og frjáls­lynd­i á svo fal­leg­an hátt,“ eins og hún orð­ar það.