Sigríður skilur ekki hvers vegna Bubbi fékk undanþágu

„Hver reiknaði þessa undanþágu út? Vísindin? Æ þetta sýnir auðvitað fum og fát og stefnuleysi stjórnvalda,“ segir Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, á Twitter-síðu sinni.

Sigríður gerir þar að umtalsefni þá staðreynd að Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens fari fram með óbreyttu sniði þessi jólin. Hertar samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti og óttuðust margir að fresta þyrfti tónleikum og öðrum viðburðum nú rétt fyrir jól.

Í gærkvöldi var tilkynnt að tónleikar Bubba fengju undanþágu en þeir fara fram í Hörpu annað kvöld.

Þessi undanþága hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum og sitt sýnist hverjum.

Sigríður tekur það fram að hún styðji Bubba og aðra sviðslistamenn „en frábið mér um leið gervistuðningsyfirlýsingar við þessar takmarkanir sem sagðar eru í nafni sóttvarna.“

Hringbraut sagði í gærkvöldi frá viðbrögðum Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fyrrum kollega Sigríðar, sem var ekki sáttur við að Bubbi fengi undanþágu. Sagði hann að Bubbi væri falinn beint á andlitið „inn í hóp spillingar- sérhagsmunaelitunnar sem hann er alltaf að drulla yfir.“