Sigríður segir að íslenskum strákum sé leyft að smitast

Sigríður Elsa Álfhildardóttir, sjúkraliðanemi og frambjóðandi Pírata í Norðvesturkjördæmi, segir að Íslendingar séu ekki allir jafnir þegar kemur að bóluefnum. Staðreyndin sé sú að helmingi þjóðarinnar sé leyft að smitast af veiru sem getur valdið krabbameini í alvarlegustu tilfellum.

„Ef það er eitthvað sem Íslendingar hafa sýnt í faraldrinum þá er það að landsmenn treysta vísindunum. Ég, sem verðandi heilbrigðisstarfsmaður, er gríðarlega þakklát fyrir það. Þegar vísindin sýndu fram á gagnsemi grímunotkunar þá settum við á okkur grímur. Þegar bóluefnin komu til sögunnar létum við ekki okkar eftir liggja heldur flykktumst í bólusetningu,“ segir Sigríður í grein sem birtist á vef Vísis í gær.

Þar segir hún að strákar fái ekki bólusetningu gegn HPV, ólíkt norskum kynbræðrum þeirra, og spyr hvers vegna íslenskir strákar mega smitast og hvers vegna þeir mega smita óbólusetta einstaklinga.

Sigríður vísar í upplýsingar á vef bandarísku sóttvarnastofnunarinnar þar sem fram kemur að HPV sé algengasti kynsjúkdómurinn.

„Fólk sem er óbólusett gegn HPV sé þannig tiltölulega líklegt til að smitast einhvern tímann á lífsleiðinni. Aftur á móti eyðir ónæmiskerfi líkamans sýkingum af völdum veirunnar í langflestum tilfella innan nokkurra mánaða. Ef sýking nær hins vegar fótfestu og verður viðvarandi aukast líkur á krabbameini ef ekki er brugðist við,“ segir hún og vísar í upplýsingar á vef Landlæknis þar sem segir að HPV-veiran sé þannig grunnorsök forstigsbreytinga og krabbameins í leghálsi.

„Af þessum sökum eru íslenskar stúlkur bólusettar gegn veirunni við tólf ára aldur og er HPV-bólusetningin þar með hluti af almennum bólusetningum.“

Aftur á móti eru strákarnir ekki bólusettir gegn HPV þó að veiran geti valdið frumubreytingum sem leitt geta til krabbameins í hálsi, endaþarmi og typpi. „Strákar geta vissulega fengið bóluefni gegn veirunni, en þá þurfa þeir að greiða fyrir það úr eigin vasa – ólíkt norskum strákum.“

Sigríður kveðst vera þeirrar skoðunar að íslenskum strákum eigi líka að bjóðast ókeypis bólusetning við HPV, rétt eins og stelpunum, á grundvelli jafnréttis og betri lýðheilsu.