Sig­ríður sakar Þór­ólf um ýkjur til að hvetja til bólu­setningar barna

Sigríður Á. Andersen fyrrverandi ráðherra sakar í færslu á Facebook Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um ýkjur í þeim tilgangi að hvetja til bólusetningar barna.

„Mér er fyrirmunað að skilja hví sóttvarnalæknir ýkir ítrekað niðurstöður rannsókna á áhrifum veirunnar á börn. Í dag fullyrðir hann á upplýsingasíðu sinni að Sóttvarnastofnun ESB (ECDC) hafi gefið út að 0,6% barna „sem smitast“ af Covid-19 þurfi spítalainnlögn og 10% þeirra gjörgæslu og 0,006% „smitaðra“ látist.“

Hún segir þetta ekki eiga við rök að styðjast ef gögn EDC séu skoðuð, það sé mikið misræmi milli tölfræði stofnunarinnar og Þórólfs.

„Ónákvæmni af þessum toga, mögulega til þess að hvetja til bólusetningu barna (sem ég ætla ekki að hafa skoðun á), mögulega til að réttlæta áframhaldandi þvingunaraðgerðir í nafni sóttvarna, er til þess fallin að draga úr trúverðugleika boðskaparins. Ekki síst þegar í skýrslu ECDC kemur fram að „bólusetningarátak sem ætlað er að draga úr Covid alvarlegum veikindum og dauðsföllum ætti að beinast að auknu bólusetningarhlutfalli fullorðins fólks.“ Og áður en stefna er mótuð um bólusetningu barna vegna Covid-19 leggur ECDC til að hugað sé að framkvæmd slíkrar bólusetningar og heilsufarslegu jafnræði. Hefur það verið gert hér á landi nú þegar bólusetningar barna eru boðaðar?“