Sigríður sakar Drífu um hræsni: „Hún ætti sjálf að þekkja það“

Sigríður Á Andresen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fer ekki fögrum orðum um Drífu Snædal fráfarandi formann ASÍ, í færslu sem birtist á Facebook-síðu hennar.

Það vakti gríðarlega athygli í gær þegar Drífa vísaði til hegðunar Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar sem ástæðu þess að hún sagði af sér formennsku ASÍ. Hún sagði Sólveigu hafa verið kjaftfora, hafa öskrað á sig, og rokið á fundum.

Sigríður gefur nú til kynna að sjálf Drífa hafi gerst sek um einmitt það sama þegar hún yfirgaf Vinstri græna vegna samstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn.

„Fráfarandi formaður ASÍ kvartar undan kjaftforu fólki sem hún segir vega að félögum sínum í þeim misskilningi að telja það merki um róttækni. Hún ætti sjálf að þekkja það. Yfirgaf sína eigin félaga með hurðaskellum og fúkyrðaflaumi sem einnig var beint að stærsta stjórnmálaflokki landsins. Forsætisráðherra, formaður VG, segist sjá á eftir Drífu. Það verður ekki upp á vinstri menn logið.“

Þetta skrifar Sigríður sem fjallar síðan um stöðuna í verkalýðshreyfingunni.

„Upphlaup sem þessi í verkalýðshreyfingunni gerast æ tíðari. Fyrir hinn venjulega mann er ómögulegt að átta sig á þeirri geðshræringu sem virðist vera uppi meðal forystumanna hinna ýmsu verkalýðsfélaga. Það sem einkennir verkalýðsbaráttuna nú eru gífuryrði og einbeittur ásetningur til þess að ríghalda í gamaldags skautun í umræðu um kjör landsmanna.“

Að lokum hvetur Sigríður til þess að vinnandi fólk komi sér úr verkalýðshreyfingunni.

„Eitt liggur hins vegar fyrir. Flestir félagsmanna eiga engra annarra kosta völ en að láta það yfir sig ganga að greiða hlutfall launa sinna til þessara félagasamtaka. Hingað til hafa fáir atvinnurekendur staðið með rétti launþega til þess að standa utan við þessi samtök öll sem nú bera pólitík sína kinnroðalaust á borð. Er ekki kominn tími til að félagafrelsi launþega sé gefinn gaumur?“