Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, birti athyglisverða mynd á Twitter-síðu sinni í gær. Nú þegar farið er að vora eru gangstéttar víða þaktar sandi eftir veturinn og virðist Sigríður hafa litla þolinmæði fyrir því.
„Ár eftir ár er Reykjavík nánast ófær gangandi fyrstu mánuði vors/sumar vegna óhreininda. Hversu flókið getur það verið að þrífa borgina?“
Á myndinni má sjá býsna skítuga gangstétt sem ekki er enn búið að sópa.
Færsla Sigríðar fékk þó nokkur viðbrögð og setti að minnsta kosti einn spurningarmerki við notkun hennar á orðinu „ófær“.
„Nánast” sagði ég. Fólki skrikar fótur í svona möl á steypu. Varð að slíku hjá barni. Fótafúið fólk veigrar sér við göngu við svona aðstæður,“ sagði Sigríður.
Hún segir að ábyrgðin sé hjá borginni.
„Borgin sturtar sandi í tonnatali á stéttar og götur og ber skylda til að hreinsa hann upp. Hvort tveggja sjálfsagður þáttur í rekstri borgar. Það er síðan vel hægt að draga úr þörf fyrir sandi á vetrum með betri nýtingu affals heits vatns frá heimilum og fyrirtækjum.“
Ár eftir ár er Reykjavík nánast ófær gangandi fyrstu mánuði vors/sumar vegna óhreininda. Hversu flókið getur það verið að þrífa borgina? pic.twitter.com/7CfZ7FbkHH
— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) April 18, 2022