Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi þingkona og dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, gerir stólpagrín að fulltrúum Íslands á loftslagsráðstefnunni í Glasgow sem hefst um helgina, í færslu á Facebook síðu sinni.
Henni þykir málflutningur nokkurra af þessum 50 fulltrúum í gegnum Covid-faraldurinn og um loftslagsbreytingar orka tvímælis með för þeirra til Glasgow.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær fara fjórir íslenskir þingmenn til Glasgow: Kristrún Frostadóttir Samfylkingu, Andrés Ingi Jónsson Pírötum, Sigmundur Davíð Miðflokki og Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Auk þingmannanna fara þrír ráðherrar til Skotlands: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Þá er gríðarlegur fjöldi íslenskra embættismanna með í för en eins og áður segir fara alls 50 fulltrúar Íslands til Glasgow.
Vitanlega ferðast allir fulltrúarnir með farþegaþotum á loftslagsráðstefnuna. Það þykir Sigríði skjóta skökku við í ljósi umfjöllunarefnis ráðstefnunnar – auk ummæla margra embættismanna um samstöðu í gegnum Covid-ástandið:
„Er einhver 50 fulltrúa Íslands sem er á leið á loftslagsráðstefnuna sem hefur ekki:
a) sagt okkur hinum að ferðast minna vegna „hamfarahlýnunar“?
b) skipað okkur hinum að vera heima vegna þess að smitum sé að fjölga og „við séum öll almannavarnir“?
Og nú er Ísland orðið ,,rautt" (þeirra eigin orð). Ætla ráðherrar og aðrir opinberir starfsmenn virkilega að fara yfir landamærin og hætta á að bera veiruna til útlanda og í fólk frá ,,grænum" löndum?“ segir Sigríður í færslu sinni.
Hún fær góðar undirtektir frá Facebook vinum sínum. Hreinn nokkur Sigurðsson segir: „Hræsnin hjá þessum trúboðum „hamfarahlýnunar“ er ótrúleg.“
Þá segir Gunnlaugur Bjarnason: „"hamfaraheimska" er mannkyninu hættulegri en örlítið meiri ylur.“
Pétur nokkur sparar ekki stóru orðin: „Þetta er 50 manna sendinefnd íslenskra hræsnara og snobbhænsna, sem hyggjast belgja sig þar út, á ráðstefnu viðlíkra hræsnara og snobbhænsna. Guð gefi okkur frið fyrir þessum faríseum og tollheimtumönnum. Væru þau samkvæm sjálfum sér (en það eru hræsnarar og snobbhænsn eins og þau reyndar aldrei) hefðu þau haft jarðtengingu og notað teams, og setið á borunum sínum heima.“
Jóhann nokkur Símonar þykir athugavert að umhverfisráðherra sé með í för: „Mikið rétt hjá þér Sigríður Á Andersen. Var að hugsa það sama þegar ég heyrði fréttinna. Umhverfisráðherra með í för. Er ekki hægt að taka samband upp á milli manna með fjarbúnaði. Þetta er orðið skrípaleikur ráðherra og annar sem sækja þessa ráðstefnu.. Vel mælt hjá þér.“
Vignir Jón Jónasson setur fulltrúatöluna í samhengi: „50 Íslendingar = 50000 Bandaríkjamenn ef við miðum að þeir séu 1000 x fleiri. Ísland er stórasta land í heimi.“