Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hún hafi þolað ómálefnalega gagnrýni og jafnvel persónulegar árásir, ekki Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmanna Pírata. Líkt og greint var frá í gær sagði Þórhildur Sunna af sér sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis þar sem verið væri að níða persónu hennar.
„Ég býð ekki upp á að meirihlutinn hafi eitthvað skjól í því að níða mig og mína persónu til að forðast það að sinna eftirlitshlutverki þessarar nefndar,“ sagði Þórhildur Sunna.
Sigríður kannast ekki við persónuárásir í garð Þórhildar Sunnu. „Ekki liggur enn fyrir hvaða persónulegu árásir fyrrverandi formaðurinn á að hafa orðið fyrir sem ollu því hún fann sig ekki lengur í formannssæti né hvað það er sem hún á að hafa verið „skálkaskjól“ fyrir,“ segir Sigríður í færslu á Facebook. „Ég veit það eitt að Þórhildur Sunna hefur hvergi dregið af sér í ómálefnalegri gagnrýni á þingmenn, „linnulausum árásum“ eins og hún nú kveinkar sér undan og jafnvel ásökunum um saknæma háttsemi. Það þekki ég persónulega.“
Segir hún holan hljóm í þingmönnum Pírata og öðrum þingmönnum stjórnarandstöðunnar „sem grétu krókudlílatárum í ræðustól Alþingis í gær yfir meðferðinni á þessari „konu“ sem hefði mátt þola „persónulegar árásir“.“ „Menn verða að afsaka þótt ég taki ekki þátt í kertafleytingunni sem trúlega er fyrirhuguð.“
Vísar hún svo í umræður Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, og Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. „Helga Vala hjó í sama knérunn í morgun þegar Landsréttur kom til tals. Helga Vala sat ekki þingi þegar stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjallaði um tillögu mína að skipun dómaranna við Landsrétt á síðasta kjörtímabili. Samt lét Helga Vala í veðri vaka að hún þekkti það mál allt ljómandi vel enda hefði hún setið í nefndinni, en lét þess ógetið að hún tók sæti þar á þessu kjörtímabili. Þá hafði Helga Vala jafn rangt við og þingmaður Pírata þegar hún vísaði til „ólöglegrar skipunar“ minna á dómurunum. Skipun mín á dómurum við Landsrétt var ekki ólögmæt. Hæstiréttur hefur margoft komist að þeirri niðurstöðu bæði beint (með dómi í maí 2018) og óbeint með fjölda dóma sem fjalla um dóma uppkveðnum af þeim dómurum sem ég skipaði. Þá hafa sumir þessarar dómara sótt um stöður sem losna við Landsrétt (hvað sem um það má segja) og þeir fengið en þó aðeins með því að þeim sé veitt lausn frá þeirri stöðu sem ég veitti þeim.“
Sigríður gefur í skyn að hún sjálf hafi orðið fyrir ómálefnalegum málflutningu og jafnvel árásum.
„Vilji menn dæmi um ómálefnalegan málflutning, og jafnvel „linnulausar árásir“ á ,,konu", þá er ekki útilokað að það sé hér. Þegar þingmenn, sem jafnvel vilja halda á lofti að þeir séu löglærðir, halda því ítrekað fram að dómarar við Landsrétt hafi verið skipaðir ólöglega.“