Sigríður Hagalín biðst afsökunar – Einar: „Hún mun svara fyrir þetta í Kastljósi í kvöld“

Óhætt er að segja að Facebook-veggur fréttakonunnar og rithöfundarins Sigríðar Hagalín Björnsdóttur hafi logað í morgun eftir jarðskjálftahrinuna á suðvesturhorni landsins.

Eins og einhverjir eflaust vita gaf Sigríður Hagalín frá sér bókina Eldarnir undir lok síðasta árs. Segir sagan frá Önnu Arnardóttur, forstöðumanni Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við risavaxið verkefni þegar jarðskjálftar og eldgos hefst á Reykjanesskaga.

Þó að um skáldsögu sé að ræða er atburðarásin eitthvað sem vel gæti átt sér stað, enda lengi verið beðið eftir stórum skjálftum og eldgosi á Reykjanesskaga.

Andri Snær Magnason rithöfundur sagði á Facebook-síðu sinni í morgun að ef gos hefst á Reykjanesskaga í kjölfar hrinunnar þurfi þjóðin hreinlega að ræða hvað eigi að gera við Sigríði. Einar Þorsteinsson, einn af umsjónarmönnum Kastljóss og kollegi Sigríðar, svarar að bragði: „Hún mun svara fyrir þetta í Kastljósi í kvöld.“

Ólína Þorvarðardóttir, þjóðháttafræðingur og fyrrverandi þingmaður, segir að hún sé nýbúin að lesa bók Sigríðar og það auki henni ekki beint ró.

Hallgrímur Helgason rithöfundur slær á létta strengi og varpar spurningu til Sigríðar á hennar eigin Facebook-vegg. „Allt eftir bókinni ... Hvar verður aftur gosið?,“ sagði hann. Sigríður svaraði að bragði og sagði einfaldlega: „Úff ... afsakið þetta ónæði.“

Hanna Katrín Friðriksson, þingkona Viðreisnar, spyr Sigríði hvort þetta sé ekki bara orðið gott. „Næsta bók um ástir samlyndra hjóna eða eitthvað þannig.“ Eiginkona Hönnu, upplýsingafulltrúinn Ragnhildur Sverrisdóttir, segir undir athugasemdinni að hún hafi þegar stungið upp á landssöfnun.

„Allt fé rennur til SHB til að tryggja að hún skrifi aldrei fleiri bækur! Látum vera með Eyland, það gat sosum verið tilviljun. En Eldarnir? Nei, hættu nú alveg.“

Sigríður var í viðtali um bókina í Kiljunni í nóvember síðastliðnum þar sem hún sagðist hafa nördalega mikinn áhuga á jarðfræði. Hún ræddi við vísindamenn við vinnslu bókarinnar til að dýpka skilning sinn á efninu. Rifjaði hún upp að þær hamfarir sem lýst er í bók hennar hafi átt sér stað á þessum slóðum fyrir um 800 árum.

Ef gýs núna á Reykjanesi þarf þjóðin að ræða hvað á að gera við Sigríður Hagalín Björnsdóttir.

Posted by Andri Snær Magnason on Miðvikudagur, 24. febrúar 2021