„Í raun og veru er ég alveg jafn hissa og allir aðrir á því hve nærri veruleikanum skáldsagan ætlar að fara,“ segir Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona og rithöfundur, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Margir hafa velt fyrir sér ótrúlegum líkindum skáldsögu hennar, Eldarnir, sem kom út undir lok síðasta árs við atburðina sem nú eiga sér stað á Reykjanesskaga.
Sjá einnig: Sigríður Hagalín biðst afsökunar – Einar: „Hún mun svara fyrir þetta í Kastljósi í kvöld“
Sagan segir frá Önnu Arnardóttur, forstöðumanni Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við sitt stærsta verkefni á ferlinum þegar jarðskjálftar og eldgos hefst á Reykjanesskaga. Þó að um skáldsögu sé að ræða er atburðarásin eitthvað sem vel gæti átt sér stað, enda lengi verið beðið eftir stórum skjálftum og eldgosi á Reykjanesskaga.
Tilviljanir geta stundum verið magnaðar en í samtali við Morgunblaðið segir Sigríður að kannski fari hér saman rithöfundur og fréttamaður. „Stundum dettur maður óvænt inn í atburðarás og sagan verður til af sjálfu sér.“
Sigríður fylgist nú með atburðunum á Reykjanesskaga úr fjarlægð þar sem hún er komin í tveggja mánaða leyfi frá fréttastofunni. Leyfið ætlar hún meðal annars að nota til ritstarfa. Hún segir svo í léttum dúr væntanlega:
„Og nú velti ég hreinlega fyrir mér hvort ég eigi framvegis að halda mig við sögur um liðna tíð í stað skáldverks sem virðist hreinlega ætla að verða spásögn.“