Sigríður fengið nóg: „Þingmenn vonandi að ranka við sér“

„Gott hjá Vilhjálmi. Þingmenn vonandi að ranka við sér,“ segir Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingmaður, á Twitter-síðu sinni.

Þar gerir hún viðtal RÚV í morgun við Vilhjálm Árnason, þingmann Sjálfstæðisflokksins, að umtalsefni. Vilhjálmur sagði að færi svo að aðgerðir yrðu hertar, með tilliti til minnisblaðs Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis, myndu þingmenn Sjálfstæðisflokksins gera athugasemdir við það.

Greint var frá því í gær að Þórólfur myndi leggja til 20 manna samkomubann. Ríkisstjórnin fundar nú um málið og er tíðinda að vænta að fundi loknum.

Sigríður fagnar því að fyrrum kollegar hennar úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins séu farnir að ranka við sér en betur megi ef duga skal.

„En athugasemdir eru ekki nóg. Það þarf að leggja þessi mál fyrir Alþingi. Alþingismenn eru ekki umsagnaraðilar.“

Sigríður hefur verið mjög gagnrýnin á aðgerðir innanlands í faraldrinum til þessa eins og margir vita.

Vilhjálmur sagði við RÚV í morgun að kominn væri tími til að gera langtímaáætlanir í sóttvörnum, standa við þær fullyrðingar að lifa þurfi með veirunni og að fleiri komi að borðinu við ákvarðanatöku.

„Við erum búin að vera tvö ár í faraldrinum og við erum að taka svona harðar aðgerðir án þess að, eins og mér finnst allavegana, hafa nógu miklar upplýsingar um hvert er markmið aðgerðanna og rökin fyrir hverri aðgerð fyrir sig,“ sagði Vilhjálmur meðal annars.