Sigríður ekki sátt: „Menn gera bara eitthvað, til að gera eitthvað“

Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir sóttvarnaraðgerðir ríkisstjórnarinnar harðlega.

Hertar að­gerðir taka gildi á mið­viku­daginn í næstu viku og gilda í fjórar vikur, að undan­skyldri grímu­skyldu sem tekur gildi strax.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að­gerðirnar þó til­tölu­lega vægar í samtali við Fréttablaðið. Sam­komu­tak­markanir fara úr 2000 manns í 500, opnunar­tími skemmti­staða og veitinga­staða er styttur úr klukkan eitt til ellefu.

Grímu­skylda verður aftur tekin upp í verslunum og á við­burðum. Skerpt verður á reglum um eins metra regluna og verður nánari út­færsla hennar kynnt í reglu­gerð ráð­herra sem birt verður síðar í dag. Svan­dís segir að smit­tölur aldrei verið jafn háar og nú. Í gær greindist met­fjöldi smita innan­lands, alls 167. Fyrra metið var sett 30. júlí, 154 smit.

Sigríður segir ekkert samhengi í aðgerðunum:

„Eins og ég hef bent á sl. 15 mánuði þá er ekkert samhengi á milli aðgerða á landamærum og aðgerða innanlands. Harðar aðgerðir á landamærum leiða EKKI til "eðlilegs lífs innanlands,“ segir hún hvöss á Twitter. „Menn gera bara eitthvað, til að gera eitthvað.“